Komnar heim
Já við gleymdum alltaf að skrifa á síðuna að við erum komnar heim
Við komum heim 4. okt... Við erum komnar með vinnu í World class, sem er bara mjög fínt
Við komum heim 4. okt... Við erum komnar með vinnu í World class, sem er bara mjög fínt
Sidan vorum vid ad spalla vid folk i herberginu okkar i kvold, eina 18 ara stelpu og 29 ara gamlan strak (sem kom medal annars fram i Glaestum vonum hehe hann var i nokkrum thattum i 1 og 1/2 ar). Vid erum nuna ad fara adeins nidri bae ad skoda okkur um
Verid sael ad sinni...
Við höfðum góðan tíma til að hafa okkur til og svona áður en skólinn byrjaði. Það byrjuðu 2 nýjir nemendur í bekknum hennar Beggu þannig að þau eru núna 4
Kennslustundirnar voru mjög fljótar að líða og skólinn var bara búinn áður en við vissum af. Við fórum á hárgreiðslustofu rétt hjá skólanum og þeir kíktu á hárið hennar Láru og ráðlögðu okkur hvað við gætum gert. Eftir það fórum við í Kínahverfið á veitingarstað, þar sem við erum hvorugar vanar kínverskum mat þá vissum við ekkert hvað við ættum að panta. Við völdum eitthvað af matseðlinum sem að leit út fyrir að vera gott, þegar við fengum matinn okkar þá leit hann ekki út fyrir að vera góður þarna var ekki aftur snúið svo að við smökkuðum að sjálfsögðu matinn. Við kláruðum allt nema þarann hehe hann var ferkar þurr fyrir okkar smekk, hitt sem við fengum voru rif sem voru ágæt, síðan voru nokkrir réttir sem voru pakkaðir inn í eitthvað (svínsskinn eða eitthvað álíka). Það var ómögulegt að vita hvað var inní þessu, við vonuðum bara að við værum ekki að borða hundakjöt eða eitthvað álíka. Þetta var mjög spes, borðanlegur matur en ekkert rosalega góður... Við sitjum núna á bar þar sem er þráðlaust internet, ætlum að chilla aðeins hérna og blogga og svona þar sem að þráðlausa internetið er ennþá bila í skólanum! 
Það tók ekki nema klukkutíma að fara til Liverpool, við vorum með kort af bænum sem að tómstunda leiðbeinandinn í skólanum lét okkur fá, þannig að við "rötuðum" um bæinn. Við fórum á World museum, þar sem að við sáum alskonar hluti t.d. alskonar fiska, tarantúlur, maura, þjóðbúninga, risaeðlubeinagrindur, kjötætu blóm (plöntur), allavegana uppfinningar o.fl. o.fl...
).
Við fengum ekki að fara í sund þannig að leiðin lá aftur heim eftir þessa löööööngu fíluferð hehe
)
Þegar við vorum komnar til Blackpool þá redduðum við korti og löbbuðum af stað í áttina að ströndinni, við löbbuðum síðan meðfram ströndinni í áttina að rússíbananum öll strandlengjan var bara eins og tívolí með alskonar grínbúðum, bingóum, spilavítum, matsölustöðum, minjagripabúðum, minigolf völlum, einu risastóru parísarhjóli og fleiri tækjum
Það tók okkur svona 30mín að labba að Pleasure Beach skemmtigarðinum þar sem rússíbaninn var, við keyptum dagsmiða og gátum farið í hvað sem við vildum. Við byrjuðum auðvitað á stóra rússíbananum, fórum síðan í fullt fullt af fleiri rússíbönum (sem voru ekkert síðri en þessi risastóri) við fórum í flest öll tækin og mörg oftar en einusinni
Við vorum þarna alveg þangað til eiginlega allt var lokað þá þurftum við víst að fara út því miður... þegar við komum út úr skemmtigarðinum þá blasti við okkur fullt fullt af ljósum, öll strandgatan var með upplýst með alskonar skreytingum. Þetta var geggjað flott, mjög erfitt að lýsa því en okkur leið bara eins og við værum komnar til Las Vegas. Við ákváðum að taka hestvagn til baka, það var þvílík umferð sem var bara gott þar sem við gátum skoðað vel í kringum okkur því við fórum svo hægt
Spilavítin og skemmtistaðirnir við götuna voru upplýstir, göturnar fullar af fólki, stóra parísarhjólið var lýst upp með alskyns blikkandi ljósum, krakkar í bílunum í kring vinkuðu okkur þegar við fórum framhjá þeim (okkur leið bara eins og við værum frægar hehe).
Við tókum næstu lest aftur til Manchester þegar klukkan var að ganga 21. Þegar við vorum á leiðinni heim í lestinni frá Blackpool voru nokkrir strákar frekar drukknir, klæddir í kjóla og fleiri fyndin föt. Einn strákurinn sem var fullur tók eftir að við værum að taka myndir svo hann kom til okkar og fór úr bolnum tók utan um Ozlem og Noelle og vildi að við tækjum mynd ad honum með þeim hehe
Hann labbaði aðeins frá okkur lagðist á hnén og lagaði á sér hárið í glugganum... Svo hrundi hann bara niður lá á annari hliðinni og byrjaði að kippast til og froðufella eins og hann væri að fá krampa eða eitthvað (samt frekar gervilegt) við stelpurnar fórum bara að hlæja af honum því vissum að hann væri nú bara að grínast í okkur.
Eftir að gaurinn var búinn að liggja þarna í smá stund þá ákváðum við að kalla í vin hans og segja honum að taka hann.Vinur hans kom og talaði eitthvað við hann en gaurinn á gólfinu svaraði ekki hann reyndi að ná sambandi við hann en hann svaraði ekki, svo stoppar lestin og strákurinn segir við gaurinn á gólfinu að þeir væru komnir þá allt í einu stekkur gaurinn upp af gólfinu og hleypur út hehe
Hann stekkur síðan aftur upp í lestina til okkar og biðst afsökunar og að þetta hafi bara verið djók og fer aftur út, við horfum síðan á eftir honum þegar lestin okkar fer af stað standandi þarna á lestarstöðinni pissandi utan í eitthverja ferðatösku þarna. Við allar steinhissa ennþá að furða okkur á því hvað hefði eiginlega gerst og springum síðan allar úr hlátri hehehe 
Við förum síðan beinustu leiðina heim þegar við komum aftur til Manchester, leggjumst upp í rúm og sofnum í kringum tólf leitið eftir viðburðaríkan rússíbana dag 
Við sváfum út sem var mjög þæginlegt búnar að vera svo þreittar í vikunni, fórum svo niðrí bæ vorum komnar þangað kl 16.30 hittum Ozlem og Noelle sýndum þeim verslunarmiðstöð sem við fundum um daginn. Begga lét laga klippinguna sína, já hehe Begga fór í klippingu á fimmtudaginn komin með stutt hár að aftan, hanakamb ofaná og sítt á hliðunum (sjáið myndirnar).
Okkur var boðið í mat til Ozlem, hún og Noelle ætluðu að elda
þær fóru á undan okkur úr bænum við vorum komnar kl 18.30 upp í stúdentagarðana. Við horfðum á sjónvarpið og spjölluðum aðeins á meðan þær voru að elda, síðan komu Mazek og Theresa, við fengum kjúklingarétt og pasta sem var bara mjög gott og í eftirrétt voru hitaðir bananar í pönnuköku með ís og belgísku súkkulaði very good
Við horfðum saman á X-factor og þátt sem er mjög vinsæll hérna í Bretlandi sem við bara munum ekki hvað heitir við vorum allavega hjá þeim til kl 22.30.
Við tókum strætóinn okkar númer 43 eins og venjulega, síðan þegar við vorum búnar að vera stopp í strætó í svolitla stund þá fórum við að pæla hmm strætóinn okkar stoppar aldrei hérna, sætin voru mun óþæginlegri en venjulega og það var enginn inní strætó. Við löbbum niður og spyrjum strætóbílstjórann hvað sé í gangi og hann segir að þetta er seinasta stoppið hans, en þetta er númer 43 er það ekki spurjum við? Jújú þetta er númer 43 en þetta var víst annað fyrirtæki heldur en okkar strætó er frá þannig að hann fer ekki á sama stað, sem betur fer þá var strætóskýli hinum megin við götuna þar sem okkar strætó kom þannig að við komumst alveg heilar á húfi heim
Þegar við komum heim þá var miði frá Karen um að hún hefði farið út að djamma, Gústi hringir í Láru þau spjalla í svona 20 mín saman síðan horfum við aðeins á sjónvarpið áður en við förum að sofa.